Vikureflect vol.1
Gleðilegan þriðjudag kæri lesandi. Vonandi fór mánudagurinn vel í þig. Það getur tekið svolítið á hjartað að starta nýrri viku eftir notalega helgi en ég vil meina að við verðum bara að taka henni fagnandi. Hvað þá þessari viku! Endum seinustu viku á Valentínusardegi, störtum svo þessari á bolludegi. Höldum svo enn í gleðina og tökum sprengidaginn og svo öskudaginn og endum vikuna á konudegi! Febrúar er nottla bara besti mánuðurinn (alveg hlutlaust mat…).
En í dag set ég inn fyrstu viku-reflect-pepp færsluna. Þetta verður (vonandi) vikulegur dagskrárliður hér á blogginu þar sem mig langar að taka bara aðeins stöðuna á lífinu og vonast til þess að fá þig með mér í það. Í amstri dagsins getur verið gott að taka sér pásu og bara anda aðeins. Það getur verið svo stutt í það að maður detti í sjálfsstýringuna og maður hættir að njóta lífsins.
Þetta finnst mér frábært að gera á hverjum degi. Ég gef mér tíma fyrir smá hugleiðingar í dagbókina mína. Þá slekk ég á öllu stressi sem fylgir því að vera í 100% BA námi á tímum heimsfaraldurs og bara að vera ofhugsarinn sem ég er heh… og get gleymt mér í litlu augnablikunum. Ég ætla samt að halda þessum daglegu stundum fyrir sjálfa mig en ég mæli endalaust með því að þú prófir að gefa þér bara tíma á hverjum degi, bara þess vegna setjast niður og ekki gera neitt, vera bara með sjálfu þér og pæla. Hvað ertu þakklátt fyrir í dag, hvað gerðirðu í gær (já ég allavega gleymi því oft bara hvað ég var að gera áðan því kollurinn er á svo miklu flugi) og hvað langar þig að gera í kvöld. - En OKEI, ég gæti haldið endalaust að blaðra um dagbókarskrif og hugleiðingar með sjálfu sér en það er efni í aðra færslu (sem er mögulega búin að vera í vinnslu í marga daga því ég hef svo mikið að gera en þarf að fara að gefa mér tíma til að klára…)
Uppáhalds podcastið mitt þessa stundina er einmitt svona vikulegt spjall með stelpu frá London sem er í námi í Edinborg. Hún heitir Nayna og ohh, hún er bara svo mikil fyrirmynd og fæ ég svo mikinn innblástur frá henni. Ég elskaaa bara svona hugleiðingaspjöll. En ásamt því að fjalla um einhver topic þá tekur hún einnig fyrir í hverjum þætti eitthvað tvennt sem hún er þakklát fyrir og einhverja tvo sigra, sem mér finnst bara eitthvað svo brilliant concept og eitthvað sem mig langar að gera hér í þessum færslum líka. Ásamt því að fara yfir seinustu viku þá langar mig líka að setja mér markmið fyrir þá næstu og deila með ykkur quote-i vikunnar og mögulega einhverjum innblæstri. Ég lifi nefnilega á Pinterest en það er mitt innblástursboost! Einn daginn á ég eftir að mana mig upp í það að taka þetta upp í hlaðvarpsformi (finnst það miklu persónulegra og skemmtilegra að hlusta á) en ég skrifa þetta hér til að byrja með 🙈
Mér finnst dagarnir líða svo hratt núna og hef ég enga tíma í neitt finnst mér. Ég í alvöru þurfti að grípa núna í skipulagsdagbókina mína til að sjá hvað ég gerði í seinustu viku! En vikuna 8. - 14. febrúar var lota í sálfræðideild í skólanum og þar sem það er Covid þá var ekki mikið gert í þessari lotu, allt heima í zoom og gat ég því nýtt tímann aðeins í það að vinna upp fyrirelstra og lestur og fleira í skólanum. Á þriðjudaginn seinasta þá gaf ég mér tíma til að fara á Bláu Könnuna ein með sjálfri mér og skrifaði aðeins fyrir bloggið áður en ég fór í tíma til sálfræðingsins míns. Ég fór fyrir mánuði og fannst gott að pústa aðeins hjá henni og losa aðeins úr flækjum í hausnum. Við áttum mega gott spjall og er ég bara á mjög góðri leið með sjálfa mig (mæli með fyrir alla að hitta sála og bara spjalla og spegla sig aðeins, hausinn getur flækst svo rosalega að það getur verið gott að spjalla aðeins við einhvern).
En þegar kemur að sigrum þá tel ég klárlega það vera ákveðinn sigur fyrir mig að ég og vinkonur mínar ákváðum að byrja að mæta á dansæfingar einu sinni í viku! Regluleg hreyfing er eitthvað sem ég hef átt í erfiðum með undanfarið því mér finnst ekki gaman að mæta sjálf ein í ræktina og gera mitt en núna þegar ég er skráð á námskeið með bestu vinkonum mínum að gera eitthvað ótrúlega skemmtilegt eins og að dansa, það er eitthvað fyrir mig. Ásamt því þá prófuðum við þrjár vinkonurnar að mæta í Hot Barre tíma hjá Alice, sem er einskonar styrktartími og jú viti menn, Aldan kláraði einn heilan tíma! Dó reyndar í lokin og ætlaði aldrei aftur að mæta en mætti svo í næsta tíma með annarri vinkonu sem ætlaði að prófa og þetta var bara það skemmtilegasta í heimi. Það er eitthvað svo magnað að vera í svona hóp og þetta fór bara þannig að ég skráði mig á næsta námskeið!
Seinni sigur þessarar viku var síðan sá að ég ákvað að taka þátt í stjórn Kumpána (sem er aðildafélagið mitt í HA) sem fjarmálastjóri! Ég mætti nefnilega á Aðalfundinn til þess að styðja vinkonur mínar sem ætluðu að bjóða sig fram, og líka bara geggjað áhugavert að fylgjast með félaginu sínu í skólanum. Svo vantaði framboð í fjarmálastjóra og ég tók það bara að mér! En ekki örvænta strax, ég sagðist ekki vera það góð í stærðfræði og núverandi stjórn taldi mér trú um það að það væri alls ekki það eina sem skipti máli í þessu starfi. Ég tel mig ágætlega skipulagða og er í alvöru bara mega spennt fyrir þessu!
Það sem ég er síðan afar þakklát fyrir er hvað farið er að birta til á daginn. Ég kem mér í alvöru ekki á fætur fyrr en sólin fer sjálf á fætur og ég verð svo orkumeiri á daginn þegar hún er sem hæst á lofti. Það er rugl hvað hún er farin að hafa mikil áhrif á mig og getu mína yfir daginn. Man ekki eftir að hafa verið svona tengd henni en seinustu ár hefur maður náttúrulega bara þurft að rífa sig á lappir til að mæta í skólann - það er ekki alveg svo gott núna…
Seinna þakklætið þessa vikuna er sennilega fjölskyldustundin sem ég átti á laugardaginn og vinkonur mínar sem komu í smá galentines kaffiboð til mín á sunnudaginn. Við frændsystkinin tókum það á okkur að elda súpu frá grunni og bjóða síðan foreldrunum í matarboð á laugardagskvöldið, svo spiluðum við og áttum bara mjög gott kvöld saman. Svo á sunnudaginn nýtti ég tækifærið sem valentínusardaginn bauð upp á til að gera mér smá dagamun og bjóða stelpunum í smá galentines vöfflukaffi. Ég fór í búðina og keypti í cupcakes og dúllaði mér allan daginn í að undirbúa notalegheitin eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Vil samt taka það fram að ég held aldrei eitthvað upp á Valentínusardaginn, nýtti bara tækifærið til að dúlla mér og halda þetta þemaskreytta kaffi. Samt hugsaði ég þennan dag einnig tengdan þeirri sjálfsást sem ég er að vinna í með sjálfri mér. Ég stóðst ekki freistinguna í búðina til að kaupa mér rósabúnt og gefa mér í tilefni dagsins og það gerði daginn minn hvað margir voru að forvitnast frá hverjum ég hefði fengið þessi blóm! Eins og maður geti nú ekki keypt sjálfum sér falleg blóm á einhverjum Valentínusardegi… Nei ég segji svona, hafði bara mjög gaman að því og elska þessi blóm.
Þótt þessi vika sé þó byrjuð þá langar mig samt að taka fyrir nokkur markmið. Ég er að reyna að taka svefninn í gegn hjá mér, held það verði samt lengra process en ein vika en þetta byrjar ágætlega (sólin að hjálpa mér í því). Svo er ég líka að draga úr óraunhæfum kröfum á sjálfa mig, sem er reyndar líka lengra process en einhverstaðar byrjar maður nú. Ég hef nefnilega alltaf verið að setja mér dagsmarkmið, hvað ég þarf að læra og svona en ég tók bara sjálf eftir því fyrir nokkrum dögum að ég er að setja mér bara allt of mikið á hvern dag, ég hef ekki fleiri klukkutíma í sólarhringnum en þessa sem allir hafa. Mér fannst nefnilega tíminn minn einhvernvegin vera að fela sig fyrir mér en það kom svo bara í ljós að ég var kannski ekki að nýta hann eins og ég gæti. Þannig ásamt því að skrifa to-do lista fyrir daginn prentaði ég út auða stundatöflu fyrir vikuna þar sem ég hef bara alla klukkutímana sem ég hef til að gera hlutina og raða ég þeim síðan bara inn. Þannig sé ég að eftir að ég hef sett inn æfingar, zoom fundi og fleira tilheyrandi þá hef ég kannski bara fjóra tíma yfir daginn í að læra eða vinna en ekki 17 eins og mér fannst… Ég vona að þið skiljið hvert ég er að fara með þetta en hér fyrir neðan er mynd af auðri stundatöflu eins og ég nota (afar einfalt að gera, ég gerði bara töflu í words).
Ég ætla að enda þessa færslu á smá innblæstri inn í vikuna (myndir teknar af pinterest hjá mér). Ég vona að þú gerir hvað sem er til að eiga hana sem besta. Taktu þér tíma til að hugsa aðeins um sjálfa þig. Taka þér pásu, taka skref aftur á bak og endurmeta líf þitt - er eitthvað sem þig langar að gera betur, langar að eyða meiri tíma í, langar að bæta í daglega rútínu, langar að draga úr eða hvað sem er. Að lokum langar mig að deila nýja instagram accountinum sem ég bjó til nú á dögunum en þar ætla ég að fylla allt með gleði, innblæstri, peppi og bara einhverju sem huganum mínum dettur í hug. Mun nýta þann reikning til að spyrja ykkur hugmynda og alls konar fleira tengt blogginu og komandi færslum. Endilega hendið í eitt lítið follow -> @dagbokoldu á insta! ❤️