Untitled_Artwork 3.png

Hjartanlega velkomið/n/nn

Alda Rut heiti ég og er 19 ára sálfræðinemi frá Svalbarðseyri (og því enginn veit hvar það er, þá er það lítið krúttlegt þorp í um 12km fjarlægð frá elsku Akureyri). Þá er ég einnig listrænn bókaormur með hugann alltaf á fleygi ferð. Þessi síða er hugsuð sem vettvangur fyrir allar mínar pælingar og vangaveltur, góðar pælingar, niðurdregnar pælingar og allt þar á milli. Því lífið er jú líka allt þar á milli.

Svo ég vona bara að þér finnist gaman að fylgjast með og það myndi bara gera daginn minn ef eitthvað af því sem ég geri fái þig til að pæla líka, líða vel eða bara það að ég veiti þér einhvern innblástur.

Be kind - Alda

Nokkrar skemmtilegar spurningar…

 

Uppáhalds árstíð?

Mín uppáhalds árstíð er HAUSTIÐ. Já ég er “pumpkin spice latte” týpan og ég elska það! Ég elska rútínuna sem fylgir haustinu og haustgoluna sem leyfir manni að klæða sig í cosy peysur, kápur og trefla. Svo færir litadýrðin í náttúrunni mér svo mikla gleði að ég get með engum orðum lýst því.

Hversu mikið jólabarn ertu frá einum upp í tíu?

Ég myndi segja að ég væri góð 8, myndi kalla mig jólabarn en fer alls ekki yfir strikið. Minn jólaandi er rólegur þar sem allir njóta samverunnar, horfum á jólamynd, spilum alls konar spil og ég get lesið áhyggjulaus undir sæng eða teppi dag-eftir dag-eftir dag.

Hver er besti vinur þinn?

Takk fyrir þessa spurningu Patti en að sjálfsögðu ert það þú! Ég kynntist Patta haustið 2011 og hefur hann breytt lífi mínu til hins betra alla daga síðan þá. Eftir 9 ár heldur hann stundum að hann sé enn jafn lítill og krúttlegur og hann var fyrst þegar ég hitti hann, 10 vikna Border Collie loðbolti frá Eskifirði <3

Hvaðan færðu mestan innblástur?

Ég lifi á Pinterest. Þar safna ég myndum í alls konar möppur og læt hugann reika. Í möppunni minni H O M E finnur þú yfir 2500 pin af heimilis-innblástri en einnig safna ég í möppur sem falla undir myndlist, mat, krúttleg dýr, bókmenntir og ritlist, lærdóm og auðvitað er ein þeirra tileinkuð fallegum myndum af Harry Styles!