Gleðilegt jólafrí!
Já ég er sko sannarlega komin í mitt langþráða áhyggjulausa jólafrí! Seinustu vikur hef ég reyndar verið að glíma við drauga (já byrjum þetta bara á alvarlegu nótunum)en þessir draugar gera mig stundum svo brjálaða. Þótt ég sýni það kannski aldrei, reyni ég mitt allra besta daglega að takast á við þá. Það er eitthvað við það að detta í áhyggjulaust jólafrí eftir erfiða og strembna prófatíð. Nokkurn veginn eins og að labba meðfram sundlaugarbakkanum í ískulda og snjókomu að heitapottinum. Það tekur á að labba og reyna ekki að detta á blautum bakkanum og hitinn stingur inn að blóði þegar þú sest ofan í. En þegar líkaminn er loksins búinn að jafna sig á hitastiginu er ekkert notalegra en hlýjan og slökunin í pottinum.
En já…
Velkomin og takk fyrir að kíkja við hér á síðunni minni. Ég vona að það fari bara vel um þig hér og að þú munir geta fundið eitthvað áhugavert hér í framtíðinni. Ég mun koma til með að skrifa alls konar um alls konar, voða “líbó” bara, enginn æsingur. Í rauninni er ég eiginlega bara að reyna að leita að sjálfri mér og langaði mig að leyfa ykkur að fylgjast með. Ég veit að mér myndi finnast skemmtilegt að fylgjast með svona bloggi, svo ég vona bara að einhver hafi gaman að. Ef þú vilt kynnast mér aðeins betur þá gerði ég flipa hér á síðunni þar sem þú getur kynnst mér örlítið betur.
Í þessu jólafríi ætla ég að leyfa mér að njóta - já ég á mjög erfitt með það. Ég er með lista yfir hluti sem mig langar að afreka, klára og gera. Ég ætla að safna minningum, innan skynsamlegra covid marka. Ég á margar ókláraðar bækur, það er orðið að vana hjá mér að eignast bækur, byrja á þeim öllum í einu og klára þær aldrei. Svo einhver tími á eftir að fara í það. Ég ætla að sortera smá heima og í huganum líka. Svo langar mig líka að horfa á Love Actually, I KNOW, ég hef aldrei séð hana! Svo ég þarf að bæta úr því. En annars hef ég þetta ekki lengra að sinni, svona í byrjun - þið þurfið að fá að melta þetta ;)
Endilega sendið mér línu, bara alltaf ef ykkur liggur eitthvað á hjarta. Væri gaman að koma upp þræði um hvað við ætlum að gera um jólin - við erum orðin að einu litlu samfélagi hérna! <3
Yfir og út - Alda